Memento vinnur að því að brúa bilið á milli samfélagsmiðla og banka með nýrri tegund greiðsluþjónustu. Memento þróar alhliða greiðsluumhverfi fyrir banka sem leggur áherslu á að auðvelda greiðslur á milli einstaklinga, sérstaklega þegar kemur að sameiginlegum útgjöldum, peningasöfnunum og öðrum hefðbundnum greiðslum.
DataMarket gerir einstaklingum kleyft að nálgast með auðveldum hætti ýmis töluleg gögn sem hingað til hefur verið erfitt að finna eða vinna með. Félagið býður einnig fyrirtækjum og stofnunum upp á ýmsar lausnir til að birta og selja eigin gögn og leysa þannig úr læðingi það verðmæti sem er fólgið í eigin gögnum. Félagið var selt til Qlik haustið 2014.
Gagarin er nýmiðlunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í að setja upp gagnvirkar sýningar og innsetningar með aðstoð nýjustu tölvutækni. Gagarin hefur um árabil verið leiðandi á íslenskum markaði með slíkar lausnir og er nú í auknum mæli að sækja verkefni á erlenda grundu, enda fáir aðilar á markaðnum sem búa yfir jafn viðamikilli reynslu og þekkingu á þessu sviði eins og Gagarin.
Meniga aðstoðar einstaklinga við að fá betri yfirsýn yfir fjármálin á einfaldan hátt og bera neyslu sína saman við neyslu annarra. Meniga selur hugbúnaðarlausn sína fyrst og fremst til banka, sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum uppá nýstárlegar leiðir til að sinna fjármálum sínum.
Twitter: @meniga
Twitter: @meniga
Mint hefur þróað nýja lausn, MedEye, til að koma í veg fyrir að sjúklingum á spítölum séu gefnir rangir lyfjaskammtar, en slíkt er algengara en flestir gera sér grein fyrir. MedEye lausnin samanstendur af tæki sem greinir pillur með því að nota tölvusjón og ýmsa skanna, ásamt meðfylgjandi greiningarhugbúnaði.